19. janúar 2023

Tímarit fullt af fróðleik og viðtölum: Fjarðaálsfréttir 2022 eru komnar út

Fjarðaálsfréttir 2022 komu út milli jóla og nýárs en þær hafa komið út á hverju hausti síðan árið 2008. Í þeim er að finna skemmtileg viðtöl, áhugavert efni um áliðnaðinn, fréttir af framleiðslu Fjarðaáls og margt fleira. Tímaritinu er dreift til allra heimila á Mið-Austurlandi, allt frá Djúpavogi til Vopnafjarðar. Á forsíðu tímaritsins í ár er Sigurgeir Svanbergsson, framleiðslustarfsmaður í skautsmiðju Fjarðaáls og ofurhugi.

Þetta 14. tölublað Fjarðaálsfrétta er að venju fjölbreytt og er því ætlað að veita innsýn inn á stærsta vinnustað Austurlands og sýna fjölbreytileika fólksins sem þar starfar.

Í forsíðuviðtalinu að þessu sinni er rætt við ofurhugann Sigurgeir Svanbergsson sem hefur fengist við ótrúleg verkefni en hann leggur stund á sjósund af miklu kappi auk þess að þjálfa og æfa bardagalist sem mörgum kann að þykja óhugnanleg. Í blaðinu ræðir Sigurgeir kenningar sínar um mikilvægi þess að fólk læri að upplifa sársauka án þess að hann verði að þjáningu. Hugmyndir hans eru einkar áhugaverðar og gætu orðið fólki hvati til að snúa sér að heilsusamlegri lífsstíl.

Þá er einnig rætt við nýjan yfirmann álframleiðslu Alcoa í Evrópu sem nýverið heimsótti Alcoa Fjarðaál. Hún heitir Veronica Dolç Vázquez, er frá Spáni og kemur með ferska vinda inn í áliðnaðinn. Í viðtalinu fjallar hún meðal annars um áskoranir og tækifærin í áliðnaði á komandi tímum og hvað henni þykir vera mikilvægast svo að vinnustaðir megi dafna og ná góðum árangri.

Einnig er rætt við tvær öflugar Fjarðaálskonur, þær Rebekku Rán og Maríu Ósk, sem báðar hafa fengið tækifæri til að þróast í starfi. Þær hófu sinn starfsferil hjá Alcoa Fjarðaáli og tóku báðar við yfirmannsstöðu hjá móðurfélagi Fjarðaáls fyrr á þessu ári. Þær ræða um starfsferil sinn og hvaða ljósi þær líta kvenréttindabaráttuna á Íslandi.

Þá er fjöldinn allur af fræðandi og skemmtilegum greinum í blaðinu, til dæmis fjallar Hólmgrímur E. Bragason um mikilvægi sálræns öryggis á vinnustöðum, hægt er að fræðast um hvernig ál hefur verið nýtt í geimskotum og svo má njóta glæsilegra ljósmynda af sýningunni Lífið í þorpinu og úr atvinnuauglýsingum Alcoa Fjarðaáls sem teknar voru fyrr á þessu ári. Venju samkvæmt er bókaormur Alcoa Fjarðaáls á sínum stað sem að þessu sinni er Guðmundur Pálsson en hann deilir með lesendum bókunum í lífi sínu.

Til þess að lesa Fjarðaálsfréttir 2022 og skoða myndirnar, smelltu hér fyrir neðan. Blaðið er í pdf-formi og það er 6,5 Mb.

Þar fyrir neðan má sjá efni fyrri tölublaða og skoða þau eða hlaða þeim niður.


Fjarðaálsfréttir 2022

Skoða/hlaða niður Fjarðaálsfréttum 2022

04 Leiðari – Gleðilega hátíð – Dagmar Ýr Stefánsdóttir, ritstjóri Fjarðaálsfrétta
05 Ný tækifæri
06 „Sársauki er óumflýjanlegur, þjáning er val“ – viðtal við Sigurgeir Svanbergsson
12 „Sálrænt öryggi: grunnurinn að góðu teymi“ – grein eftir Hólmgrím E. Bragason
13 Bókaormur Fjarðaáls – Guðmundur Páll Pálsson
14 „Þurfum að breyta samfélagsgerðinni“ – viðtal við Maríu Ósk Kristmundsdóttur og Rebekku Rán Egilsdóttur
19 Spurning augnabliksins
20 Lífið í þorpinu – Ljósmyndasýning
40 „Við þurfum að finna gleði í öllu sem við fáumst við í lífinu“ – Viðtal við Veronicu Dolç Vázquez, nýs yfirmanns Alcoa í Evrópu
46 Eagle samtök Fjarðaáls
43 Spurning augnabliksins
44 Jólatrésskemmtun Sóma
48 Alcoa Fjarðaál –15 ára starfsafmæli
50 Tæknidagur fjölskyldunnar í Verkmenntaskóla Austurlands
51 „Gefur út ljóðabók á merkum tímamótum“ – Viðtal við Snorra Aðalsteinsson
52 Spurning augnabliksins
53 Kvenréttindadagurinn, 19. júní 2022 – Vel heppnað kvennakaffi hjá Alcoa Fjarðaáli
54 Styrkur til Fjarðabyggðar til að stuðla að náttúruvernd og minjavörslu
55 Nýr flúorbíll í kerskála Fjarðaáls
56 „Orkan í álinu“ – Fræðslugrein um nýjungar í áliðnaði
58 Styrkur til að efla sjálfstyrkingu ungmenna í Fjarðabyggð og Múlaþingi
59 Hin mörgu andlit Alcoa Fjarðaáls – Kynningarátak Alcoa Fjarðaáls

image from alcoa.typepad.com
Fjarðaálsfréttir 2021

Skoða/hlaða niður Fjarðaálsfréttum 2021 (9,2 Mb)

4 Leiðari – Gleðilega hátíð!
5 Ný tækifæri
6 Vill vera leiðsögumaður starfsfólksins (viðtal við Einar Þorsteinsson)
13 Bókaormur Fjarðaáls (Guðný Þóra Guðnýjardóttir)
14 „Skortur á húsnæði stendur Austfjörðum fyrir þrifum“ (viðtal við Kolbein Guðnason)
20 Piparkökuhúsin gerð heima í ár
22 Fjölbreytileikanum fagnað hjá Alcoa Fjarðaáli
24 Ofurbakari og leiðtogi í kerskála (viðtal við Mörtu Zielinsku)
26 Alcoa Fjarðaál hlýtur eftirsóknarverða ASI-vottun
30 Sigurgeir synti í níu klukkustundir til að styrkja samtökin Einstök börn
32 Mannauðurinn er lykillinn að góðum árangri (viðtal við Smára)
34 Nýi E-Tron GT frá Audi skartar byltingakenndri nýsköpun frá Alcoa
35 Ásgrímur Sigurðsson valinn í fagráð hjá HR
36 Markmið þurfa að vera raunhæf og sértæk (viðtal við Sigrúnu Birnu Björnsdóttur)
38 Fjórða iðnbyltingin hefur hafið innreið sína hjá Fjarðaáli (viðtal við Hlöðver Hlöðversson)
40 Konur í verk- og tæknifræði (ErnaGuðrún Þorsteinsdóttir, Helga Kolka Hlöðversdóttir, Valgerður Yngvadóttir og Freyja Viðarsdóttir)
43 Fjarðaál stóð fyrir fundum um jafnréttismál fyrir starfsmenn
44 Farfuglarnir hjá Fjarðaáli (rætt við sumarstarfsmenn)
46 Breytt lýsing bætir starfsumhverfið hjá Fjarðaáli (viðtal við Jón Garðar Helgason)
48 Alcoa Fjarðaál styrkir hvataverkefni til að efla háskólamenntun á Austurlandi
50 Sjötíu og fimm ára þróunarsaga áljeppa

(Ath. að ekkert blað kom út árið 2020 vegna Covid-19)

 

2019_forsida_fjardaalsfrettir

Fjarðaálsfréttir 2019

Download Fjardaalsfrettir_2019_net

04 Leiðari – Ár áskorana
06 Tekst á við lífsins ólgusjó með bros á vör
12 Áhugamálið
17 Bókaormur Fjarðaáls
18 „Jólin snúast um frið og ró og að njóta samveru með öðrum“
24 Jólaskemmtun Sóma
26 „Það verður líklega ekkert úr þessum dreng!“
32 Allt í sóma hjá Sóma
34 Hreinsun strandlengju Fjarðabyggðar
36 Ótrúlegur listamaður í steypuskálanum
39 Vatnajökulsþjóðgarður á heimsminjaskrá
40 Vel heppnuð ráðstefna um jafnréttismál á vinnustöðum
42 Allt nýtt sem hægt er að nýta
44 Styrkúthlutun 2019 hjá Alcoa Fjarðaáli
48 Stærsti hópurinn útskrifaður
50 Háspennukefli verða að stofuborðum
52 „Action“ sjálfboðaverkefni
54 Verkar mörg hundruð ára gamlan hákarl fyrir þorrablót
57 Styrkur til vísindasamfélagsins
58 Álræn nytjalist

image from alcoa.typepad.com

Fjarðaálsfréttir 2018

Download Fjardaalsfrettir_2018_NET

Efnisyfirlit:

04 Ávarp forstjóra

05 Ný umhverfisvæn tækni í álframleiðslu

07 „Það kostar að vera töffari“

10 Hversu vel þekkjast þau?

12 Óvenjuleg áhugamál

17 Bókaormur Fjarðaáls

19 Aldrei fundið fyrir fordómum á Reyðarfirði

22 Árleg jólaskemmtun

25 Ný virkjun í eyðifirði

28 Stuðningur við menntun starfsmanna hjálpar fyrirtækinu að vaxa

32 Verðum að gera okkar allra besta til að minnka sóun og auka sjálfbærni

34 Elsti gesturinn sem hefur sótt álverið heim

35 Nýir raflausnarbílar auka öryggi og framleiðni

36 Rúmar 27 milljónir veittar í styrkúthlutun Fjarðaáls 2018

40 Hundraðasti neminn útskrifast frá Stóriðjuskóla Fjarðaáls

42 Sendiráð Póllands setti upp afgreiðslu í álverinu

43 Vísar Jaguar I-Pace veginn?

 

 

image from alcoa.typepad.com

Fjarðaálsfréttir 2017

Skoða/hlaða niður Fjarðaálsfréttum 2017

Efnisyfirlit:

04 Afmælisleiðari

05 Bætti framleiðsluferli með lokaverkefni sínu

07 Hönnunarsýning í Fjarðaáli

08 Álið gerði hann að Odee

10 Afmælisfögnuður hjá Fjarðaáli

11 Tæpur helmingur sumarstarfsmanna hjá Alcoa Fjarðaáli eru konur

12 „Ert þú hafmeyja?“

14 Fjarðaálsfjölskyldan stækkar og stækkar

20 Alcoa Fjarðaál vottað samkvæmt jafnlaunastaðli

22 Skautsmiðjan meira heillandi en trillulífið

26 Saga Fjarðaáls í máli og myndum

34 Heillaður af lífsviðmóti Ástrala

36 Líður stundum eins og landkönnuði

38 Smári Geirsson segir söguna að baki tilkomu Alcoa Fjarðaáls

42 Fjarðaál er menntafyrirtæki ársins

44 Kristján sænski kom heim til Íslands

47 Bílasýning á 10 ára afmælishátíð Fjarðaáls

 

Fjardaalsfrettir_forsida_200px

 

Fjarðaálsfréttir 2016

Download Fjardaalsfrettir_2016_lr.

Efnisyfirlit:

04 Starfsemi Alcoa Fjarðaáls 2015

05 Ávarp forstjóra

06 Styttri vaktir – aukin ánægja

08 Útskrift stóriðjuskóla Fjarðaáls

10 Alcoa styrkir uppbyggingu náms í efnis– og málmfræði

11 Skautsmiðjan, fjölskyldan, rúgbrauðin og Trabbinn

14 Fjarðaál er leiðandi vinnustaður í heilsuvernd

16 Heilsueflingarnefnd heldur Fjarðaálfum á hreyfingu

18 Ber er hver að baki nema sér bróður eigi

24 „Þið getið verið mjög stolt af Fjarðaáli“ 42 Úrval innlendra neytendavara og margs konar

Búnaðar fyrir atvinnuvegina úr íslensku áli

26 Alsjálfvirk efnagreining álbráðar í rauntíma eykur framlegð og gæðastýringu í framleiðslunni

28 Skapandi ljósmyndun og Star Wars safn á Fáskrúðsfirði

32 Næstum 300 sjálfboðaliðar öfluðu 6,5 milljónum til félagasamtaka með 21 Action hópverkefni

34 Dúx Menntaskólans á Egilsstöðum hlaut námsstyrk frá samfélagssjóði Alcoa

35 Alcoa kynnir Sustana álvörur

36 Hátíðarkaffi Alcoa Fjarðaáls 19. júní

38 Alcoa Corporation

39 Hvað viltu vita um íslenskan áliðnað?

40 Umhverfismál í öndvegi hjá öllum starfsmönnum Alcoa

44 Frá fæðingu til fermingar

46 Ómissandi jólatrésskemmtanir í álverinu

48 Jólatré sótt í íslenskan skóg

49 Anna kom með jólin á aðalverkstæðinu

50 Dagur leikskólans í álverinu

52 Góðhjartaðir blóðgjafar á heilsugæslu Fjarðaáls

53 Tæplega 120 þúsund tré gróðursett á vegum Alcoa frá stofnun Fjarðaáls

54 Vítamínsprauta frá Spretti styrktarsjóði fyrir íþróttir á Austurlandi

55 Alcoa á sjálfbærnilista Dow Jones fimmtánda árið í röð

 

image from alcoa.typepad.com

 

Fjarðaálsfréttir 2015 

Download Fjardaalsfrettir_2015_lr

Efnisyfirlit:

4 Starfsemi Alcoa Fjarðaáls 2014    

5 Ávarp forstjóra    

6 Idolstjarnan í álverinu

9 Álið frá Fjarðaáli snýr aftur heim til Íslands    

10 Mikilvægum verkefnum hefur verið hrint í framkvæmd    

12 Konan á bak við tjöldin    

14 Konur í álveri – ljósmyndasýning   

20 Mikilvægt að leita sér ráða í byrjun   

22 Helgi Laxdal vinnur að því að bæta samfélagið

24 Svipmyndir frá árinu    

26 Karlar berjast fyrir jöfnum rétti    

28 Tóku jógakennarann í Tælandi    

29 Mæðgurnar Þórey og Hrafnhildur

31 Velferðarþjónustan hjá Fjarðaáli    

32 Heppin ungmenni fengu dvöl í bandarískum þjóðgarði    

34 Reykjavíkurmærin sem flutti á Norðfjörð

36 Gífurleg tækifæri fyrir skapandi greinar á Austurlandi    

38 Styrkúthlutun    

40 Hvergerðingur heldur uppi árlegu stuði á Norðfirði

41 Rauan Meirbekova – áhrif snefilefna við rafgreiningu áls    

42 Gætum lagt miklu meira að mörkum

44 Tveir starfsmenn fara í Earthwatch-leiðangur     

46 Álnotkun í byggingariðnaði

 

image from alcoa.typepad.com

 

Fjarðaálsfréttir 2014 

Download Fjardaalsfrettir_2014_lr

Efnisyfirlit:

3 Ávarp forstjóra Fjarðaáls   

4 Starfsemi Fjarðaáls 2013    

5 Vel hægt að vinna á vöktum

6 Í námi jafnhliða starfi   

7 Pólskt bókasafn lítur dagsins ljós    

8 Enn gríðarleg sóknarfæri til staðar

10 Stuðningur fyrir krabbameinssjúka    

11 Reynsla sem ég mun aldrei gleyma    

12 Styrkúthlutanir Alcoa Fjarðaáls

13 Dægurlagadraumar í Mjóafirði    

14 Fjarðaál - í lífi og starfi árið 2014    

16 Flúor ekki í því magni að geta skaðað

17 Í Action    

18 Álklasinn    

19 Vörur sem skila meiru í þjóðarbúið    

20 Oddur álbóndi gerir garðinn frægan

22 Jafnrétti mun aukast    

23 Spriklandi lax og bleikja í Jökulsá á Dal    

24 Alls staðar yndislegt fólk

26 Gunnarshús á Skriðuklaustri 75 ára    

27 Fróðleiksmolar - sífellt meira ál í bílum

 

image from alcoa.typepad.com

 

Fjarðaálsfréttir 2013 

Download Fjardaalsfrettir_2013_lr

Efnisyfirlit:

3 Ávarp forstjóra Fjarðaáls

4 Starfsemi Fjarðáls 2012

5 Áfanga náð í bættum umhverfismálum

6 Mikilvægt að styrkja dreifikerfi rafmagns

8 Raforkunotkun

9 Langar að stuðla að sátt um áliðnaðinn

10 Svipmyndir

12 Ævintýri á víravélinni

14 Hálslón – vatnsborð ekki lægra áður

15 Kalt vor réð miklu um síðbúnar vorleysingar

16 Betri tekjumöguleikar í hefðbundnum karlastörfum

18 Listamaður í liðinu

19 Met í melmi

20 Leiklistarbakterían blundar enn

22 Flokkunarstöðvar aukaafurða álversins vekja athygli

23 Fróðleiksmolar Hilmars

 

image from alcoa.typepad.com

 

Fjarðaálsfréttir 2012 

Download Fjardaalsfrettir_2012_lr

Efnisyfirlit:

3 Farsæl starfsemi í fimm ár

4 Ýmsir áfangar - myndir

5 Upprifjun ráðherra

6 Forréttindi að fá að byggja frá grunni

7 Ýmsir áfangar

8 Íbúarnir öðluðust trú á svæðið

9 Hér er pláss fyrir alla

10 Ýmsir áfangar

12 Ótrúlegt hvað tíminn hefur liðið fljótt

13 Sækir vinnu um langan veg

14 Í ferðaþjónustu og þvotti

15 Þetta var ótrúlegur tími og skemmtilegur

16 Enn ótal tækifæri til staðar

17 Tökum virkan þátt í samfélaginu

18 Fleiri atvinnutækifæri fyrir konur

19 Styrkur og uppbygging

19 Þetta álver er bara snilld

20 Sitt lítið af hverju

22 Gjörbreytti atvinnustiginu á svæðinu

23 Önnur stærsta höfn landsins

24 Hamingjuóskir þingmanna

26 Að vera eða fara – það var spurningin

27 Þakklátir fyrir aukatímann

28 Þrjú öflug atvinnufyrirtæki

30 Umhverfis Fjarðaál á fimm árum

 

image from alcoa.typepad.com

 

Fjarðaálsfréttir 2011 

Download Fjardaalsfrettir_2011_lr

Efnisyfirlit:

3 Nýsköpun alls staðar

4 Staðreyndir um Alcoa Fjarðaál

5 Nýja kersmiðjan

6 Ferðasjúkur iðnaðarverkfræðingur

7 Rafknúinn bílafloti

8 Sorp og endurvinnsla

9 Bilanagreining

10 Brammer

11 Mikil hagræðing

11 Kranahermir Fjarðaáls

12 Vinir Vatnajökuls

13 „Þungmálmur“ í álverinu

14 Fjölskyldan ánægð fyrir austan

15 Melmisstangir

16 Gamla kaupfélagið öðlast nýtt líf

18 Samfélagsstyrkir

18 Félagsmiðstöðvar

19 Kjarneðlisfræði31 Fróðleikur um álið

 

image from alcoa.typepad.com

 

Fjarðaálsfréttir 2010 

Download Fjardaalsfrettir_2010_lr

Efnisyfirlit:

4 Alcoa Fjarðaál við Reyðarfjörð

5 Vatnajökulsþjóðgarður

6 Valkyrjurnar í álverinu

8 Sjálfbærniverkefni Landsvirkjunar og Alcoa

10 Svipmyndir

12 Álvíraframleiðsla

13 Ný og krefjandi verkefni

14 Á ferð og flugi alla tíð

15 Norðursprotar skjóta rótum

16 Sómastaðir endurbyggðir

17 Hugmyndir um kapalverksmiðju

17 Álheimar taka til starfa

18 Framlag til hjálparstarfs kirkjunnar

18 Kersmiðja skapar tugi nýrra starfa

19 Fróðleiksmolar Hilmars

 

image from alcoa.typepad.com

 

Fjarðaálsfréttir 2009 

Efnisyfirlit:

 

image from alcoa.typepad.com

 

Fjarðaálsfréttir 2008 

Download Fjardaalsfrettir_2008_lr

Efnisyfirlit:

3 Góðir Austfirðingar

4 Skemmtilegt, lærdómsríkt og spennandi

5 Fylgst með samfélagsbreytingum

6 Næsti nágranni álversins

6 Sjötíu störf hjá Eimskip

7 Menntaður bóndi í skautsmiðjunni

8 Hátíð í bæ!

9 Alcoa í fararbroddi

10 Allir njóta góðs af uppbyggingunni

10 Ört vaxandi fyrirtæki

11 „Til sölu ruggustóll og einnig fjögur málverk eftir Tryggva Ólafsson“

12 Sameinast fyrir Fjarðaál

12 80 milljónir í styrki

13 Nýttu tækifærið til að snúa aftur heim

14 Uppbygging fræðasamfélags

15 Álið er alls staðar

15 Saga Alcoa